Þá er vísir að síðu Grálistahópsins kominn í loftið. Við sjáum fyrir okkur að síðan verði í stöðgri þróun svo að endilega komið með ahugasemdir um það sem mætti bæta við á hana. Félagalistinn er kominn inn, það vantar einhver símanúmer svo að endilega aðstoðið okkur við upplýsingaöflun þar.
Smá klausa er komin inn um hvers vegna við erum að hópa okkur saman í Grálist.

Á stofnfundi Grálistar í júní var þetta rætt:

Samþykkt…
… að Grálistahópurinn sé nú stofnaður og heildin komin.
… að til að virkja tengslin láti allir vita að móttekinn sé tölvupóstur
því þannig látum við vita að við séum með á nótunum, látum vita um skoðun
okkar, spurningum sem vakna eða þátttöku í hugmyndum sem snúa að
samsýningarhópnum Grálist.
… að halda minnst eina stóra samsýningu á ári.
… að hver og einn fylgi sínum hugmyndum eftir ef um minni sýningar er að
ræða eða atburði sem henta Grálist.
… að ef komi til mikils kostnaðar vegna samsýninga sem snýr að
heildarhópnum að leita styrkja.
… að halda úti sameiginlega netsíðu fyrir Grálist og skrá atburði innan
Grálistahópsins.
… að hittast reglulega.



One Response to “síðan í loftið”  

  1. 1 gvaka

    Sæl öll sem eitt og til hamingju með nýju síðuna okkar…


Leave a Reply