Margeir ,,Dire” á Café Karólínu
1.8.2008 | 07:22
Margeir “Dire” Sigurðarson opnar sýninguna “Út á lífið / Party n´ bullshit” á Café Karólínu
Margeir “Dire” Sigurðarson
Margeir “Dire” Sigurðarson opnar sýninguna “Út á lífið / Party n´ bullshit” á Café Karólínu laugardaginn 2. ágúst 2008 klukkan 14.
Verkin sem Margeir sýnir á Cafe Karólínu hafa sinn innblástur að sækja til skemmtanalífs. Hann segir um verkin: “Oftar en ekki hef ég fundið sjálfan mig úti á lífinu að stara yfir allan dýragarðinn, öll æðislega vitleysan er svo skiljanleg en samt á sama tíma svo langt frá því. Hvert móment hefur sögu að bera. Hver og einn í mismunandi ástandi en öll eru þau í leit af einhverju nýju og jucy sem virðist vera rétt handann við hornið.”
Verkin eru spreyjuð og máluð með acryl á striga og á blaðgull.
Sýningin á Café Karólínu stendur til 5. september 2008.
Filed under: Uncategorized | Leave a Comment
Leita
-
Þú ert núna að vafra í Grálist sarpi bloggs.
No Responses Yet to “Margeir ,,Dire” á Café Karólínu”