ingabjork_8046251Inga Björk Harðardóttir opnaði einkasýninguna RÉTTIR á Café Karólínu um síðustu helgi og er sú sýning til 3. apríl. Inga Björk sýnir olíumálverk af gömlum réttum og segir um sýningu sína:

“Réttir eru viðfangsefni mitt að þessu sinni. Þær eru fallegar sérstaklega þessar gömlu. Samspil ljóss og skugga gefur mikla möguleika til leikja á striganum og ég kaus að fara mjög frjálslega með þær sem myndefni. Réttir eru líka stór hluti af menningu okkar þær eru fagnaðarfundir dýra og manna. Gömlu réttirnar eru uppfullar af minningum liðinna daga. Sýningin samanstendur af 7 olíumyndum sem eiga það sameiginlegt að túlka réttir en ekki allar á sama hátt eða sama tíma.”
Þetta er þriðja einkasýning Ingu Bjarkar en hún hefur tekið þátt í átta samsýningum. Hún útskrifaðist árið 2008 frá Myndlistaskólanum á Akureyri en áður hafði hún útskrifast sem Gullsmiður og starfað um árabil.



No Responses Yet to “Inga Björk sýnir RÉTTIR á Kaffi Karólínu”  

  1. No Comments Yet

Leave a Reply