Margeir Dire S. opnar tvær sýningar um helgina. Önnur þeirr er á Veggverk þar sem málverk eftir kappan skreytir vegginn en hin er samsýningin GÓMS í DaLí Gallery ásamt félaga sínum Georg Óskari.

Sýningin GÓMS stendur til 29. mars og á Veggverk fram í maí. 

GÓMS eru sameiginlega unnin verk þeirra félaga Margeirs Dire S. og Georgs Óskars sem eru unnin með blandaðri tækni. Hugmyndin að verkunum þeirra fæddist einhvern vegin svona:
“Skari!! verðum við ekki að fara gera eitthvað sjitt!
jú klárlega, hvað ertu eigilega að spá?
Bara eitthvað rúst!”

Þetta voru fyrstu orð samvinnu Georg Óskars og Margeirs Sigurðssonar,
verkin eru unnin á 6 mánaðar tímabili og binda þeir saman sýna ólíku
stíla og sitt svipaða hugarástand í myndlistina GÓMS.

Graffiti? já er það ekki?
Acrýll? já er það ekki?
málverk? já eigum við ekki að segja það?
penni? eeee…kúlupenni þá?
túss? já ég meina?
bílasprautun? já til sprauta bílinn í myndinni þá?



No Responses Yet to “Margeir Dire S. með Veggverk og GÓMS í DaLí”  

  1. No Comments Yet

Leave a Reply